eIDAS: Uppruni trausts í rafrænum samskiptum

Lagadagurinn er haldinn í Hörpu þetta árið. Í boði verða fjölmargar málstofur sem fjalla um mismunandi áherslur innan lögfræðinnar. Ein af þeim málstofum fjallar um rafrænt réttarkerfi og þar verður Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA með framsögu. Fyrirlestur Elfar fjallar um eIDAS reglugerð ESB og hlutverk reglugerðarinnar í uppbyggingu trausts í rafrænum samskiptum.

eIDAS Reglugerðin, reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 910/2014 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti á innri markaðnum, tók gildi gagnvart Evrópusambandslöndunum þann 1. júlí 2016. Einstök ákvæði eIDAS reglugerðarinnar sem snúa að viðurkenningu á rafrænum auðkenningarleiðum taka þó ekki gildi fyrr en í september 2018. Unnið er að innleiðingu reglugerðarinnar inn í EES samninginn og í kjölfar þess má vænta lagafrumvarps á alþingi.

Í fyrirlestrinum fjallar Elfur um markmið og hlutverk reglugerðarinnar, 10 helstu atriðin sem reglugerðin fjallar um og ræðir einnig álitaefnin sem komið geta upp með rafræn skjöl. eIDAS reglugerðin er þrír efniskaflar, inniber níu grundvallarhugtök og eina meginreglu.

Kynningin er aðgengileg hér.